
Prentmet Oddi þurfti vef sem útskýrir framboð og þjónustu strax, án þess að viðskiptavinir þurfi að senda póst til að komast að því hvort ákveðnar lausnir séu í boði. Við mótuðum skýrara upplýsingaflæði með áherslu á fyrirtækjamarkað, þar sem notendur velja atvinnugrein, sjá viðeigandi lausnir og vöruflokka og geta óskað eftir tilboði með skýrari forsendum.
Kjarninn í uppsetningunni er atvinnugreinahluti sem gerir framboðið aðgengilegra og leiðir notendur hraðar að réttu vali. Útkoman er markvissari vefur sem einfaldar fyrstu skrefin, bætir gæði fyrirspurna og styður betur við söluferlið.







