
Arctic Algae verður að Arctical.
Vörumerkjastefna og sjónræn endurhönnun, með skalanlegu kerfi fyrir umbúðir og stafræna miðla.
Arctical býður upp á úrval hágæða sjávarþörungaafurða sem unnar eru á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt úr hreinum íslenskum sjó. Vörumerkið byggir á trú á kraft náttúrunnar og ábyrgri nýtingu auðlinda hafsins.
Verkefnið snerist um að halda í þörungastílinn og upprunann, en setja hann í skýrt, nútímalegt og skalanlegt sjónrænt kerfi. Útkoman er róleg og traust framsetning sem styður við gæði hráefnisins og gerir vörulínunni kleift að vaxa með samræmi á öllum snertiflötum.














